maandag 10 september 2007

Línus ætlar að bloggast!

Hellllllu!

Jæja ég ákvað að koma mér í siðmenninguna og gerast bloggari á ný! Pjásusíðan okkar orðin hálfdauð enda mikið að gerast hjá okkur öllum en við munum að sjálfsögðu gera okkar besta við að halda síðunni opinni og skrifa á hana svona af og til................http://www.blogg.central.is/hollandspjasur svo hér hafið þið það!
Nema hvað að hér mun ég reyna eftir minni bestu getu að segja ykkur frá því sem drífur á daga mína hérna í Niðurlöndunum eða nánar til tekið í Den Haag! Svona ættu vinir og vandamenn að geta heyrt meira frá mér og fallegasta ofurkisanum mínum henni Quincy! Sem er nú reyndar sofandi eins og er.................en ég mun gjöra allt sem í mínu valdi stendur til að kenna henni á tölvuna og fá hana til að skrá sínar dýpstu hugsanir og svörtustu leyndarmál hér á þessa síðu!

Nema hvað! Hvað er helst í fréttum í lífi ofurdrekans???????? Jú jú skólinn góði nottla hafin á ný! Og tjaaaaaaa bara satt að segja nú þegar alveg nóg að gera svo ég kvarta nú augi yfir því að mér leiðist! Svo er planið að halda þjóðhátíð í Delft næstkomandi helgi! Ætti að geta orðin með eindæmum skemmtilegt svo lengi sem allir mæta og Pétur og fleiri í drykkjunefnd kaupa nóg af mjöðinum góða. Svo er planið að hafa mat og fleira og svei mér þá aldrei að vita nema verði bara skemmtiatriði líka? Sjálfboðaliðar?

En jú jú nú er mánudagur.........flestum til mæðu! Skóli og helgin búin! Nema nottla ef maður er Quincy! Þá er bara hægt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og sofa, mala, borða og láta vorkenna sér!

Njótið mánudagsinnssssssssss og rest þessarrar viku! Ég mun stefna á að gera hið sama:)

Línan

3 opmerkingen:

kjotbollur zei

gott hjá þér:)

nú verðurðu að vera dugleg að upplýsa umheiminn um klósettferðir og ísskápsinnihaldið þitt.

Anoniem zei

Gott framtak drekapæja. Ég veit að það er örugglega AGÚRKA í ískápnum hjá þér og að það er mjög flókið að sturta niður heima hjá þér :)
Gaman að heyra hvað þú ert að gera þarna í útlandinu. Erum samt alltaf á leiðinni að fá okkur heyrnatólagræjur vegna þess að Arnbjörgu langar svo að fara að heyra í þér. Tjá tjá

Arni zei

Ég mun þjarma að Pisinum alla vikuna og sjá til þess að hann láti ekki deigan síga í bjórinnkaupum. Annars sigum við bara Quincy á hann.