donderdag 24 januari 2008

Kom sú og sigraði!

Já hún Una mín vann hinar miklu lýðræðiskosningar sem voru haldnar hér í gærkveld! Það er nebbla einn í húsinu að fara flytja og þá eru haldnar kosningar til að velja nýjan housemate! En fyrst máttu þeir sem eru búnir að búa hér í húsinu hvað lengst rífast um fína tveggja hæða herbergið sem var að losna og svo mátti ég hirða afganginn þar sem ég er ennþá seinust í staflanum enda bara nýflutt inn. Nema ég er sumsé að fara flytja! Úr herbergi 13 í 13C eða ca. 20 skref héðan! Stórflutningar í nánd sumsé! Og Una mín fær þá herbergið mitt. 13C er nebbla þó nokkuð stærra eða með einum auka glugga! Svo Quincy mín ætti að geta teygt aðeins betur úr sér.....blessunin! Og er stórlega að hugsa um að segja skilið við fínu kojuna mína sem var ætluð til að spara pláss en þar sem ég mun núna hafa aðeins meira pláss er kannski óþarfi að láta sig hafa að klifra uppí rúm á hverju kveldi og svo aftur niður á morgnanna..........heheheeee Una að spá í að testa þetta og taka við kojunni. Sjáum hvað verður.
Nema hvað að ég er bara öngvan veginn að nenna að læra fyrir prófin. Sveiattan! Opleidingskunde er bara að ég held eitt það ALLRA leiðinlegasta fag sem ég hef nokkru sinni verið í á minni stuttu ævi! er svo ung nebbla.......... En tjaaaaaa því minna sem ég læri og nenni ekki því minni líkur að ég nái og þeim mun MEIRI líkur að ég þurfi að endurtaka þenna leiðinda skíta kúrs! Svo ég veit svosem alveg hvað er í vændum og hvað mér er fyrir bestu........heheheheee
En svo langaði mig að benda ykkur á þessa mynd frá henni Annie The story of stuff sem ég horfði á í kveld með nokkrum húsfélugum inní eldhúsi! Einkar Amerísk dramatík um allt stuffið okkar en samt áhugaverð og skemmtileg:
http://www.youtube.com/watch?v=OqZMTY4V7Ts

Dus kijken allemaal!
Bless í bili mín kæru

3 opmerkingen:

Una zei

ég vona bara að ég sé ekki lofthrædd í stór rúminu þínu... né þjáist af sjóriðu. :I

Anoniem zei

TAkk fyrir yndislegt símtal um daginn :) haltu áfram að vera svona dugleg.
Kveðjur frá einivöllunum

tóta zei

hohoho ég kíkti á byrjunina á þessari mynd. TÝPÍSKT hollenskt :D ég fór nú bara strax fram í eldhús að henda dóti án þess að flokka það.
hoho!
saknínsæta
xxx